17.1.2012 | 20:17
Af fúsum og frjálsum vilja
Það er spennandi að fylgjast með "djöfulsins snillingunum" afla fylgis við þingsáliktunartillögu sinni. Ég hef alltaf litið upp til þeirra sem hafa þroska til að geta skipt um skoðun þegar það er gert af skynsamlegri rökum en áður lágu fyrir.
En fólk getur skipt um skoðanir af ýmsum ástæðum. Við getum flokkað skoðanaskiptin í tvo meginflokka, af fúsum og frjálsum vilja og síðan þvinguð skipti á skoðunum.
Eðli málsins samkvæmt er ég ansi hræddur um að ástæðan fyrir því að Ögmundur og síðan hann blessaður Ásmundur hafa skipt um skoðun í þessu máli falli í síðari flokkinn.
![]() |
Tekur undir með Ögmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Bjarni Daníel Daníelsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Málið er að það tekur enginn lengur mark á Ásmundi. Maðurinn er er kerfilega búinn að reita af sér trúverðugleikann, meira að segja innan lúðaflokksins þykir hann gruggugur.
hilmar jónsson, 17.1.2012 kl. 21:54
Hilmar. Það er ekki verra ef þú getur staðsett Halldór Ásgrímsson á réttan stað í púsluspilinu. Ekki er Samfylkingar-ESB-heimsspekingurinn og góðvinur Halldórs Ásgrímssonar, hann Össur Skarphéðinsson neitt gruggugur, eða hvað? Hvar vinnur dáðardrengurinn Halldór Ásgrímsson í dag, og hver greiddi fyrir stöðuveitingunni hans í Köben?
Hvers vegna er Halldór Ásgrímsson, þessi grútar-pottur og panna í allri steikinni í sjávarútvegs-rányrkjunni á Íslands-miðunum, í Össurs-veittri stöðu í Köben, og hefur það fínt, á meðan kvótarændir íslendingar svelta og flýja land?
Ekki einu sinni á þessum þrengingartímum finnst Össuri, ég meina Halldóri, þörf á að leyfa íslendingum að veiða sér í soðið. Ætlaði Samfylkingin ekki að innkalla kvótann til þjóðarinnar, eða var það bara lygi?
Nú skil ég ekki réttlætinguna fyrir þinni skoðun Hilmar minn. En hún á sér örugglega einhverja djúpa skýringu, sem þú kemur eflaust með.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.1.2012 kl. 23:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.